Bloggsvæði Fíu
mnd vinir
21.02.2008 19:55:03 / hannafia

jibbí

Jæja, er komin frá Boston og er á leið til London í fyrramálið  !


               Góða helgi 8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 21:11:03 / hannafia

Jibbí !!!!

Erum á leiðinni til Boston í verslunarferð á morgun, hlakka svaka mikið til, reyndar erum við Róbert Steinn ansi háð hvort öðru, ég hef svo sem ekki miklar áhyggjur af Róbert Stein eða stelpunum, það er spurning hvernig ég höndla þetta. En börnin verða í góðum höndum, tengdó og Halla Dóra ætla að vera með þau. En best að henda einhverju smá ofaní tösku, Hafið það sem allra best, kær kveðja, Fía...........

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 22:59:32 / hannafia

Jájájá...

Ég veit, einhver rosa bloggleti í gangi.... En það er eiginlega svo mikið að gera í skipulagningu á Hlíðarásnum og svo allskonar námskeiðum út af skólanum hjá Stelpunum. En það er líka nóg að gerast í áhugamálum hjá þeim, þær eru báðar í söngskóla og svo er Silja Rós í frjálsum 3svar í viku og Ástrós Birta er í fimleikum 2svar í viku. Stelpurnar eru mjög ánægðar í Áslandsskóla þó að þær sakni vinanna úr Kópavoginum. Byggingin gengur ágætlega, það er búið að steypa og rífa allt, nema það á eftir að steypa svalirnar og er verið að vinna í því að gera þær klárar fyrir steypuna. Svo á að hella sér í þakið og klára það og vonandi næst að steina húsið að utan bráðlega. Pétur er núna í Þýskalandi á bakarasýningu, allavega segir hann það, er ekki akkúrat Októberfest núna ? Hahaha. En hann kemur heim á þriðjudaginn. Við hjónin förum svo til Boston 26 okt í verslunarferð og komum aftur heim 30 okt. Magga ætlar að passa því hún verður í vetrarfríi í skólanum og stelpurnar líka. Á morgun ætla ég og börnin að skreppa upp í Borgarnes og setja nokkrar Erikur á leiðið hennar Mömmu, aðeins að setja smá lit á leiðið í haustgrámanum.  Er einhver sem les þetta sem þekkir þetta lag og kann textann?

   Hættu að gráta hjartað mitt, þá skal mamma gefa þér sjalið sitt, og ef sjalið er ekki nógu hlýtt þá skal mamma gefa þér nálhús nýtt,   og svo eitthvað meira.

Ég er búin að vera að raula þetta fyrir Róbert Stein og honum finnst þetta svo skemmtilegt lag. Mamma söng þetta svo oft þegar ég var lítil, mig minnir að þrjú á palli hafi sungið þetta hér einu sinni. Ef einhver kann allann textann og vill gefa mér hann þá verð ég rosalega þakklát:haha:

En best að láta þetta nægja að sinni, ég reyni að hafa ekki svona langt á milli næst,  Fía.

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 22:53:50 / hannafia

Áheit til styrktar MND !

Jæja, hvernig væri nú að koma með áheit  á Pétur sem er að fara að hlaupa 10 kílómetra í Glitnishlaupinu á laugardaginn. Maður fer inn á glitnir.is og þar eru útskýringar. Ég er búin að heita 5000. kr á kappann og að sjálfsögðu til styrktar MND. Kær kveðja Fía.


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 14:57:06 / hannafia

Ágúst

Jæja, nú er sumarið búið, allavega finnst mér alltaf ágúst vera frekar drungalegur. En þetta er Ísland. Sumarið er búið að vera yndislegt, við erum búin að þvælast víða og oftast með mágkonu minni, henni Höllu Dóru og Hrefnu Sif. Við vorum td. viku í Úthlíð í æðislegu veðri og skoðuðum nágrenni og svo vorum við í Skorradalnum líka að sjálfsögðu. Við erum flutt á Einivelli 5 í rosa fína íbúð sem við leigjum þar til parhúsið okkar verður tilbúið í Hlíðarásnum. Við erum búin að vera hér í mánuð og ég hef verið ansi löt við að koma okkur fyrir, því eins og ég hef sagt þá fer draslið ekkert, en sumarið og sólin fara hratt svo að við höfum notið þess í botn. Róbert Steinn elskar að vera úti í glugga og horfa á alla vörubílana, steypubílana og gröfurnar keyra framhjá og eitt af fyrstu orðunum hans var grafa, eða gafa. Ég er ekkert farin að vinna ennþá, og ég veit ekki hvort það gengur því ég þarf að keyra og sækja stelpurnar í skólann, allavega á meðan við búum hérna. En ef ég finn draumadjobbið þá stekk ég á það. Jóna vinkona eignaðist strák 1 júlí, svo sætur. Það er búið að nefna hann, hann heitir Teitur Bjarmi. Krisbjörg systir er búin að skíra sinn strák, hann heitir Hjalti. En smá fréttir af húsamálum. Það er búið að steypa plötuna og ýta mölinni upp að húsinu og í næstu viku verður byrjað að slá upp efri hæðinni. Vonandi getum við flutt inn í febrúar. Silja Rós og Ástrós Birta byrjuðu á frjálsíþrótta námskeiði á þriðjudaginn og verða þessa viku og næstu og eru alsælar með það. Það er frá 1 til 4 á daginn. Svo byrja þær báðar á söngnámskeiði í næsta mánuði. Við Halla Dóra erum búnar að ganga á Helgafellið í sumar og svo gengum við Síldarmannagöturnar síðustu helgi, það er ca.5 tíma ganga úr Hvalfirði yfir í Skorradalinn og plötuðum við Möggu tengdamömmu með okkur. En man ekki meira í bili, þar til næst: lifið lífinu í lit. :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 00:13:42 / hannafia

Gleymdi.....

aðal fréttunum. Kristbjörg systir eignaðist annan strák, ég er ekki ennþá búin að sjá hann en ég er á leiðinni. Svo var Sigga frænka frá Grindavík að eignast tvíbura í dag, þau fengu 2 stráka, 9 og 10 merkur. Innilega til hamingju með það. Svo er Jóna vinkona komin viku framyfir, ætli það komi þá ekki enn einn strákurinn ? Þau eiga stelpu og strák fyrir. Jæja nóg í bili, kveðja Fía.

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 23:40:50 / hannafia

Fimmtudagurinn 28 júní.

Jæja kannski er barasta kominn tími á nýja bloggfærslu ! En ansi margt er búið að gerast síðan síðast og margt að gerast á næstunni. Við fórum meðal annars í afmæli til Ömmu Gróu, en hún varð 90 ára 4 júní og var afmælisveislan haldin í Lyngbrekku og kom alveg helling af fólki. Hún var svo hress og kát og ánægð að sjá svona margt fólk. Svo varð hann Ólíver 1 árs 5 júní og mættum við í afmælið. Einnig átti hún Jóna ólétta vinkona afmæli og tókst mér að koma pakka til hennar 3 vikum seinna. Ég get stundum verið svolítið sein með hlutina.......... Svo erum við búin að setja ofsalega fallegan legstein á leiðið hennar Mömmu í Borgarnesi og setja fullt af sumarblómum þar, en reyndar þarf að skipta einhverjum blómum út því það er búið að vera svo þurrt og sum blómin þola það svo illa. Silja Rós skellti sér á námskeið og smíðaði 1 stk. kofa og fór með hann upp í sumarbústað og er hún búin að mála hann og klæða hann að innan með gólfdúk og hann er orðinn svo flottur. Stelpurnar fóru svo með ömmu sinni og afa í Sumarbústaðinn síðasta fimmtudag og ég og Róbert Steinn fórum svo þangað á laugardeginum því Halla Dóra varð 30 ára þann dag. Pétur og Siggi komu svo um 6 leytið og þá var borðuð nautasteik með öllu. Veðrið var stórkostlegt og Skorradalurinn skartaði sínu fegursta. Við fórum svo rúnt í Reykholtsdalinn á sunnudeginum og gengum aðeins um Reykholt og rifjuðum upp gamla tíma. Svo lentum við í umferðarteppunni á leiðinni í bæinn, allt varð stopp upp á Kjalarnesi og vorum við ca. 1 klukkutíma þessa örfáu kílómetra. Við hjónakornin áttum svo 20 ára samveruafmæli, flott orð!, 17 júní og var Pétur búinn að fá pössun fyrir börnin hjá Höllu Dóru og búinn að panta svítu á hótel Glym í Hvalfirði. Ég kom honum líka á óvart og var búin að panta klukkustundarferð á krossurum hjá litlu kaffistofunni. Það var rosa gaman, mér tókst reyndar að detta 2svar sinnum, en það var vegna þess að ég náði ekki niður á jörðina með fæturnar. Pétri fannst rosa gaman en ansi miklar harðsperrur fékk ég og vöðvabólgu líka. Við fengum rosa góðan mat á Glym, en tókst svo að sofa af okkur morgunmatinn en skutumst í staðinn í Skorradalinn til tengdó og fengum ansi góðan morgunmat þar. Pössunin gekk mjög vel, en þetta var fyrsta nóttin sem Róbert Steinn er í pössun að heiman yfir nótt. Stelpurnar fóru svo aftur í dag í Ömmu og Afa kot og ætla að vera þar þangað til á þriðjudag. Hrefna Sif er líka með þeim því HallaDóra og Siggi fara til London eldsnemma í fyrramálið. Heri frændi, Ragna og Jón komu í dag með Norrænu frá Færeyjum og er Jón að fara í sveit á bóndabæ í Borgarfirðinum. Ég heyrði að honum langaði að komast í sveit og með góðri hjálp Grétu vinkonu fann hún þennan sveitabæ. Ég fer með þeim á morgun og ætlum við að enda á að borða saman í sumarbústaðnum.  Ég er búin að vera að pakka niður á fullu því við eigum að losa íbúðina 15 júlí, við fengum leiguíbúð á Einivöllum 5, og fáum við lyklana á morgun. Pétur er kominn í sumarfrí og verður hann þá bara í húsinu. Vonandi verður platan bráðum steypt, en ég segi nánar frá húsaframkvæmdum seinna. En nú er best að ég fari að sofa, ég ætla að skutla hjónaleysunum út á flugvöll í nótt, endilega kvittið og vonandi nenntuð þið að lesa þessa runu, þar til næst, Kær kveðja Fía.

a

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 10:41:11 / hannafia

Loksins....

Jæja þá er maður bara komin frá Færeyjum, þar sem ræturnar liggja. Það var æðislega gaman. Ferðasagan í stórum dráttum er sem sagt þessi. Komum til Færeyja á föstudagskvöldi um kl. 8.30. Fengum pínkulítinn bílaleigubíl og tróðum okkur og töskunum inn, reyndar fór þjófavörnin í gang, skil reyndar ekki hvernig þeir gátu troðið þjófavörn í svona lítinn bíl ! Eftir mikið panik þá tókst okkur að slökkva á henni og loka hurðunum, en Maja og Hlynur sátu með töskur aftur í og ég með eina frammí. Lísa keyrði. Eftir að hafa keyrt í vitlausa átt í smástund og skoðað smá sýnishorn af Færeysku fjöllunum þá fundum við farfuglaheimilið, Á Giljanesi. Við fórum að hlæja þegar við sáum herbergið því það var pínulítið með kojum. Hlynur Ægir svaf uppi öðru megin og Maja niðri og ég svaf uppi hinum megin og Lísa niðri. Það vantaði stigann upp í mína koju þannig að ég þurfti að sveifla mér upp. Ég svaf með ferðatöskuna mína uppí því það var frekar lítið pláss á gólfinu. Næsta dag kíktum við svo í Þórshöfn og fengum okkur morgunmat og fórum aðeins í sms sem er moll þeirra Færeyinga. Flottar búðir en verðlagið er svipað og hérna heima. Reyndar sýndist mér maturinn vera ódýrari. Keyrðum í Klakksvík og rúntuðum aðeins um. Kl. 5 var svo ættarmótið og það var rosalega gaman. Ég held það hafi verið um 80 manns og mætti Heri frændi með harmonikkuna sína og það var mikið sungið. Ég er nú ekkert sérstaklega hrifin af skerpikjötinu, en smakkaði samt smá. Ég bað um að fá að dansa Færeyska þjóðdansinn og það var gert og það var æðislegt ! Eftir að vera orðinn hás af söng og smá hálsbólgu var farið heim að sofa. Daginn eftir hittumst við nokkrar hetjur og gengum á staðinn þar sem amma Borga fæddist og átti heima sín fyrstu ár. Það heitir Slættanes og er bara hægt að komast þangað gangandi, með þyrlu eða með bát. Þetta var allsvakaleg ganga því við gengum eftir örmjóum kindagötum á risastóru fjalli. Ef einhver hefði hrasað þá hefði hann fallið beint niður og endað í sjónum. Hlynur Ægir gekk með okkur og ég var skíthrædd um hann alla leiðina, en hann stóð sig eins og hetja. Við stoppuðum aðeins í Slættanesi og skoðuðum kirkjuna og skólann sem er verið að gera upp og sáum rústirnar af húsinu sem Amma átti heima. Svo var farið að ræða heimför og var hringt eftir bát en hann lagði ekki í að koma vegna sjólags, þá var hringt í 80 ára gamlan sjómann á 90 ára gömlum bát og hann kom ! Þegar báturinn kom þá var hann bundinn við hálfgerða bryggju, svo gaf kallinn allt í botn afturábak til að báturinn færi ekki upp í grjótið og þegar öldurnar feyktu bátnum nálægt þá stukkum við og vorum gripin ! Börnunum var hent yfir og þau gripin um borð. Ég var svo hissa á að engin datt í sjóinn. Það var rosa gaman að sigla heim aftur og virða fyrir sér fjöllin þar sem við höfðum gengið. Við fórum svo út að borða á Hótel um kvöldið, um 30 manna hópur og fengum rosa góðan mat. Svo var farið í heimsóknir um kvöldið. Á mánudaginn var farið í Þórshöfn að versla smá á börnin  og svo flogið heim kl. 16.30 Þetta var frábær ferð í alla staði og Færeyjingar eru æðisleg þjóð. Læt þetta nægja í bili, kv. Fía.

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 10:19:02 / hannafia

Farin til Færeyja á ættarmót !

 

Jæja, þá er mín bara að fara í húsmæðraorlof !  Fer í dag til Færeyja á ættarmót sem verður á morgun, borða skerpikjöt og annað sem ég hef aldrei smakkað áður..... Svo á sunnudaginn þá förum við í göngutúr og göngum að staðnum þar sem langamma og langafi áttu heima, það er cirka 4 klukkutíma ganga hvora leið. Það er ekki hægt að fara akandi, en hægt er að komast þangað sjóleiðina. Svo á mánudaginn þá rúntum við líklega eitthvað um og lítum í kringum okkur. Vonandi verður ekki rigning, en Færeyingar segja sjálfir að það rigni 300 daga á ári. En best að klára að pakka niður á meðan litlu drengirnir sofa, kveðja Fía Færeyjarfari 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 23:33:41 / hannafia

Sunnudagur til sælu

 

Jæja, afmælishelgin að baki og stutt vinnuvika framundan. Afmælisveislan tókst bara vel, held ég, fullt af skemmtilegu fólki og frábært veður. Börnin voru að sjálfsögðu hæstánægð með gestina og allar gjafirnar líka. Á laugardaginn fórum við á opið hús í leikskólanum hennar Ástrósar Birtu og gróðursettum 2 tré í lundi rétt hjá Leikskólanum. Klukkan 2 komu svo heim 14 stelpur af leikskólanum til að skemmta sér með Ástrós Birtu í náttfatapartý sem stóð í  3 klukkutíma. Ég mæli með að hafa bara 2 klukkutíma ! En þetta var rosa fjör og mikið dansað og borðuð pizza og afmæliskaka. Reyndar var svo mikið dansað að 2 stelpurnar rákust saman og önnur fékk rosa blóðnasir og fannst stelpunum rosa merkilegt að sjá svona mikið blóð. Silja Rós og Helena Sól stjórnuðu leikjunum og veit ég ekki hvernig ég hefði farið að ef þær hefðu ekki verið. Sigmar hjálpaði mér líka, ma. sótti pizzurnar og svæfði Róbert Stein út í vagni. Um kvöldið þegar Júróvisíon var þá ryksugaði ég og skúraði allt, svona mikill var áhuginn á heimilinu á þessari austantjaldskeppni. Pétur fór á laugardagsmorguninn til London á fótboltaleik með Chelsea og Everton og kemur hann heim á morgun um miðjan dag.Ég ætla rétt að vona að hann hafi keypt eitthvað fallegt handa okkur :klikk: Hann missir af útskriftarkaffinu á leikskólanum á morgun hjá Ástrós Birtu, en Sigmar ætlar að koma og passa Róbert Stein á meðan. Ég hafði samband við svefnráðgjafa sem ráðlagði mér að hafa rúmið hans Róberts Steins í dyragættinni þar sem hann gæti séð mig og heyrt í mér þegar hann væri að fara að sofa, en hann var sko ekki að vilja það, þannig að ég ákvað að gera eitthvað sem ég héldi að mundi duga, og það gengur upp. Ég syng smá og kyssi hann góða nótt og legg hann niður, og stend svo í dyrunum og raula, hann er yfrleitt svona 5 mínútur að sofna. Þvílíkur munur  fyrir mig og hann að þurfa ekki að standa í grátveseni í 1 til 2 tíma á kvöldin.:haha: En ætli ég láti þetta ekki nægja að sinni af bulli, og að venju er ætt úr einu í annað ! Hafið það sem allra best, kveðja Fía.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 10:30:54 / hannafia

8 Maí

Halló halló. Ég ætla að byrja á að óska Tengdamömmu minni til hamingju með afmælið í dag, hún er 55 ára. Ég nota tækifærið á meðan drengirnir sofa til að blogga smá. Það er nú svosem ekki mikið að frétta,Róbert Steinn er ennþá á háu nótunum þegar hann á að fara að sofa á kvöldin, núna er kominn rúmur mánuður sem hann hefur þrjóskast við að fara að sofa, hann stendur bara upp og öskrar þangað til ég kem aftur og legg hann niður. Ég ætla að hringja í svefnráðgjafa í dag og ráðfæra mig við hann. Ég ætla að vona að hann verði orðinn góður að fara að sofa áður en ég fer til Færeyja. Það er á föstudaginn í næstu viku og fer ég seinnipartinn og kem aftur seinni partinn á mánudag. Mig kvíðir svolítið fyrir að fara frá Róbert Stein því ég hef aldrei verið í burtu frá honum yfir nótt. En börnin verða í góðum höndum hjá Pabba sínum á meðan. Róbert Steinn fór í sína aðra klippingu í gær og hann var svo stilltur á meðan að Silja klippikona klippti hann. Afgangurinn af fjölskyldunni fór líka í klippingu og lét Silja Rós klippa af sér ca. 7 sentimetra en hárið á henni var farið að flækjast svo mikið enda náði það niður fyrir mitti. Róbert Steinn verður 1 árs á föstudaginn 11 maí og Ástrós Birta 6 ára laugardaginn 12 maí. Það verður haldið upp á bæði afmælin á föstudaginn því Pétur er að fara út á laugardaginn. Jæja gott að sinni, hlakka til að fara út í góða veðrið í dag og svo er matur hjá tengdó í kvöld, nammmmmm........... Hafið það gott þar til næst, Fía.....

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 21:58:05 / hannafia

Úff.....

Mig langaði til að tjá mig aðeins um þrjósku....... Þannig er að drengurinn minn hann Róbert Steinn er naut, og er ég búin að vera að venja hann á að fara að sofa einan á kvöldin síðan FYRIR PÁSKA !!!!!! Það eru komin 18 kvöld í röð þar sem hann öskrar og grenjar og stendur upp í rúminu og hendir snuddunum sínum á gólfið. Hversu þrjóskur getur lítill maður verið ? Ég fer inn til hans á 2ja til 5 mínútna fresti og kyssi hann aftur góða nótt og legg hann niður og þurrka tárin en ég er ekki komin yfir þröskuldinn þegar hann byrjar aftur :S Oftast tekur þessi rútína frá hálftíma og upp í 1.5 klst. Á meðan sit ég inni í stofu og svitna, á milli þess sem ég hleyp inn í herbergi. Ég hef heyrt að það taki yfirleitt  ca 4 til 7 kvöld að venja börn á þetta, en 18 KVÖLD , hlýtur að vera nýtt met !!!!!  Langaði bara að tjá mig aðeins um litla þrjóskupúkann minn, þar til næst.......... Fía líka þrjóska ;)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 22:44:59 / hannafia

Komið sumar.......

Halló halló og gleðilegt sumar. Stelpunum mínum finnst reyndar ekkert komið sumar ennþá og er ég nokkuð sammála þeim. Ástrós ætlaði að fara út ú stuttu pilsi og bol á sumardaginn fyrsta því þá átti að sjálfsögðu að vera heitt úti ! Það tók smá tíma að útskýra þetta fyrir henni og þá spurði hún hvenær fyrsti vordagurinn væri þá !8) En hún er byrjuð á sundnámskeiði og finnst æðislega gaman og var rosa dugleg í fyrsta tímanum. Silja Rós var að keppa á sínu fyrsta fimleikamóti á laugardaginn og stóð sig vel. Þetta var liðakeppni og voru 24 lið og aldrei þessu vant vann Gerpla ekki neitt. Sigmar og Sævar komu að horfa á, reyndar seinkaði öllu um 2 klukkutíma og vorum við orðin frekar þreytt á að bíða. Maður hefði haldið að svona stórt félag eins og Gerpla gæti nú skipulagt svona mót, krakkarnir fengu ekkert að borða eða drekka og þurftu að bíða í einum endanum á salnum á meðan hinir krakkarnir gerðu sínar æfingar. Ég lét strákana laumast með orkudrykk til hennar svo hún fengi nú eitthvað smá að drekka. Við fórum svo í mat til Höllu og Sigga og fengum æðislegt nautakjöt, komum reyndar of seint en ég held að okkur hafi verið fyrirgefið það.:haha:  Ég keyrði stelpurnar upp í sumarbústað á skírdag því þær vildu fá að gista þar eina nótt og bauð Ömmu með á rúntinn og fengum við vöfflur og fleira gott með. Við komum einnig við í Borgarnesi á leiðinu hennar Mömmu og settum páskaliljur þar og einnig hjá Ömmu og Afa. Á Föstudaginn langa fór ég svo ásamt Pétri og Róbert Stein aftur upp í bústað að sækja stelpurnar og borðuðum við þar grillaða svínakjötspinna og meðlæti, allt æðislega gott. Fórum svo öll heim um kvöldið því ég legg það ekki á nokkurn mann að gista í sama húsi og elsku litli öskurapinn minn. Hann er búinn að vera ofsalega erfiður á nóttunni þessi elska og ég prófaði að fara með hann í höfuðbeina og spjaldhryggjarjöfnun og borgaði ég heilar 5000. kr fyrir ca hálftíma meðferð. Ég er ekki viss um að það hafi haft nein áhrif, en ég veit að tennurnar eru búnar að vera að angra hann mikið, það losnaði stórt  stykki úr gómnum á honum þegar önnur framtönnin var að riðja sér í gegn og blæddi mikið og núna er hin framtönnin að koma með svipuðum látum. En hann hefur verið betri á nóttunni og ég hef fengið að sofa 3 heilar nætur á þessu ári.:D Mér tókst líka loksins að hætta með hann á brjósti....... Ég er nokkuð viss um að það hafi verið erfiðara fyrir mig heldur en hann. En ætli ég láti þetta ekki nægja að þessu sinni, ég reyni að láta ekki líða svona langt á milli næst, kveðja Fía.   P.S. Það er mynd af Ástrós Birtu í síðasta séð og heyrt blaði þar sem hún er á ballettsýningunni í Borgarleikhúsinu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 23:03:44 / hannafia

Grasekkjan skrifar....

Jæja nú veit ég hvernig er að hafa kallinn aldrei heima. Hann er fluttur í Hlíðarás 7og 9. En byggingin okkar gengur vel, það er búið að gera grunninn að okkar húsi og þeir eru byrjaðir á Höllu og Sigga grunni. Bryndís Hrund átti afmæli í gær og kíkti ég ásamt börnunum í smá heimsókn með páskaskreytingu. Í dag er komið 1 ár frá því að elsku Mamma dó. Við hugsum mikið til hennar og mér finnst ennþá skrýtið að geta ekki tekið upp símann og hringt í hana. Ástrós Birta er að fara að sýna í Borgarleikhúsinu ballett á morgun og spennan er gífurleg ! Hrefna Sif gisti hjá okkur á laugardagsnóttina og var rosa gaman hjá okkur og á sunnudaginn þá fékk hún krullur í hárið og glimmer, við mikinn fögnuð foreldranna sem eru víst ásamt rúmfötunum sínum öll glitrandi ! :$ Róbert Steinn fór í 10 mánaða skoðun í síðustu viku og er hann orðinn 10.615 kg. og 76 sentimetrar. Hann hefur aðeins hægt á sér en það er mjög eðlilegt þar sem hann er farinn að labba og hreyfa sig svo mikið. En best að láta þetta nægja í bili, Elskið náungann, kveðja Fía.

» 6 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 10:16:59 / hannafia

Eitthvað að gerast !

Já nú er sko nóg um að vera. Við fengum Gurrý frá InRoom í heimsókn og hún færði húsgögn fram og aftur og breytti og bætti íbúðinni okkar og svo voru teknar ljósmyndir, og haldið opið hús á sunnudegi og kom fullt af fólki að skoða. Á mánudaginn komu svo 3 tilboð og við sem sagt tókum einu þeirra og seldum. Reyndar seldi ég á meðan Pétur var í vinnuferð í Danmörku, og lagði alla peningana inn á bankabók í Sviss........ Nei nei, en íbúðin er allavega seld. Við erum byrjuð á fullu í holunni okkar, það er að segja Pétur, Siggi, Jommi, Bjarni og svo eru Sigmar og Sævar líka að hjálpa til. Þeir voru að byrja á grunninum og eru búnir að vera frá 7 til 7 bæði laugardag og Sunnudag og halda áfram eftir vinnu í dag. Við erum öll búin að liggja í ælupest, nema Pétur hann slapp. Ömulegt þegar svona lítil börn eins og Róbert Steinn æla, bara hvar sem er, td. á eldhúsgólfið hjá tengdó í matarboði...... Meira af Róbert Stein, hann er farinn að labba ! 10 mánaða og labbar á milli húsgagna aleinn og stendur einn upp út á miðju gólfi og labbar til mín ! Ótrúlega duglegur og ég er hrikalega montin mamma !:haha: Hann er líka farinn að segja Mamma og dudda. Hann hefur örugglega ákveðið að herma eftir Andra Þór, hann er líka voðalega duglegur. Þeir elta hvorn annan á daginn og leika sér saman, ótrúlega góðir og duglegir. Þeir eru sofandi núna, Róbert Steinn í vagninum og Andri Þór inni í rúmi. Og ég nota tækifærið og blogga á meðan. Best að láta þetta nægja í bili, veriði góð hvert við annað og lifiði lífinu lifandi, kveðja Fía 

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8